Norskir brjóstdropar
100 mlNorskir brjóstdropar eru gríðarlega kröftugir brjóstdropar sem mýkja hálsinn, stilla þráláta ertingu í hálsi og minnka slímmyndun. Brjóstdroparnir þykja einnig virka vel upp í ennis- og kinnholur. Mixtúran er eingöngu ætluð fullorðnum, fyrir börnin bjóðum við uppá Lakkrísdropa. Norskir brjóstdropar duga við fleiru en ertingu í hálsi því að í sauðburði nota margir bændur þessa mixtúru með góðum árangri á líflítil lömb.
Sykursýróp (vatn, sykur og rotvörn), spíri, vatn, lakkrís (vatn, ammoníak, glýserín, spíri og lakkrísduft), ammoníum hydroxíð, eter, anísolía, kamfóra, bensóik sýra og fenníka.
Til inntöku: Hristist vel fyrir notkun. Skammtastærðir fyrir fullorðna eru 5 ml (1 tsk) í senn mest 4 sinnum á dag. ATH alls ekki er ætlast til að fólk taki "gúlsopa" af mixtúrunni en slíkt getur valdið óþægindum í maga, jafnvel uppköstum þar sem mixtúran er mjög sterk!
Varúð!
- Mixtúran er ekki ætluð börnum.
- Mixtúruna skal ekki taka inn á meðgöngu.
- Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.
- Neysla vörunnar og akstur fara ekki saman.
- Ekki skal neyta meira daglega af vörunni en inntökuleiðbeiningar gefa upp
Geymsla: Geymist við stofuhita eða í kæli.





