Hunangs hydrogel plástur
1 af 3
L-Mesitran
Hunangs hydrogel plástur
5 stkVörunúmer: 10142847
Verð1.429 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
1 af 3
Active Large er bakteríudrepandi, hydro‑active sárabindi til notkunar á bráðum og krónískum sárum. 5 plástrar sem eru 7,5X4,5cm hver.
Hunangs‑hydrogel púðinn gefur raka getur jafnframt tekið upp lítið til mikið magn sáravökva til að viðhalda röku umhverfi sem stuðlar að gróanda. Bakfilman veitir sárabindinu eiginleika bakteríuhindrunar. Active drepur flestar bakteríur, þar á meðal þolnar stofngerðir, t.d. MRSA. Það kemur einnig í veg fyrir sýkingu og hlutleysir sáralykt fljótt. Varan hreinsar/debriderar sárið, skapar rakt sáraumhverfi og hámarkar gróanda. Hún dregur vökva úr aðliggjandi vefjum, auðveldar sjálfvirka hreinsun (autolysis) á dauðum og ólífvænlegum vef og stuðlar að þekjumyndun og minni örmyndun. Gelið loðir ekki við sárið.
Active hefur engin áhrif á blóðsykur. Varan hefur kælandi áhrif sem getur verið gagnlegt (t.d. við bruna).
• Krónísk sár
• Þrýstingssár
• Yfirborðsbruni og bruni sem nær hluta húðþykktar
• Bláæðasár, slagæðasár og sykursýkissár
• Illkynja/útvaxandi sár (fungating wounds)
• Bráð sár
• Gjafasvæði (húðgjöf)
• Skurðsár
• Skurðir og skrámur. Geymið við stofuhita 5–25°C, Varan er sæfð þar til hún er opnuð.
L‑Mesitran Soft lækninga hunang, Akrýl‑fjölliðugel.