Sáragel fyrir ör
30 mlTil meðhöndlunar á nýlegum og eldri örum. Sáragel fyrir ör róar húðina, veitir stuðning við örvef og hvetur til eðlilegrar græðslu húðarinnar.
Gelið verndar gegn sýkingum, örvar frumufjölgun í eldri og nýlegum örum, leiðir til skipulagðrar uppbyggingar kollagen trefja fyrir betra fagurfræðilegt útlit og aukinn sveigjanleika húðarinnar. Tilvalið til meðhöndlunar á örum eftir slys, skurðaðgerðir, keisaraskurði og lýtaaðgerðir. Stuðlar að sléttari og minna sýnilegum örum. Hentar fyrir alla aldurshópa, einnig eldra fólk og börn.
ChitoCare® Medical inniheldur náttúrulegt kítósan sem er örugg, lífvirk fjölliða, einangruð úr auðlindum sjávar við Íslandsstrendur. Kítósan er undur úr hafinu og samanstendur af amínósykrum sem finnast náttúrulega í líkamanum og hefur þannig góðan lífsamrýmanleika. Kítósan myndar filmu, binst húðinni sem þarfnast verndar. Ekki þarf að fjarlægja filmuna þar sem hún brotnar niður á náttúrulegan hátt við endurnýjun húðarinnar.
Icelandic Water, ChitoClear chitosan, lactic acid, sodium benzoate.