1 af 2
Hydrogel mánaðarlinsur -2.75
6 stkStyrkleikar frá -7,00 til +3,50. Clearlii Monthly er þægileg mánaðarleg snertilinsa sem hægt er að nota í allt að 30 daga. Hönnun linsunnar hjálpar til við að jafna út litla óreglu í hornhimnu og gefur góða sjónskerpu?. Linsurnar eru þróaðar sérstaklega fyrir norrænt loftslag með UVA/UVB vörn. Mánaðarlinsurnar eru notaðar yfir daginn í allt að mánuð. Fjarlægðar að kvöldi og hreinsaðar til geymslu yfir nótt. UV vörn og mjúk þægindi
Sex stykkja pakki dugar í þrjá mánuði fyrir tvö augu og sex mánuði fyrir eitt auga. Styrkleiki: frá -7,00 til +3,50.
Ráðleggingar um notkun augnlinsa:
- Vera ávallt með hreinar hendur þegar linsa er sett í augu og tekin úr.
- Alltaf fara eftir leiðbeiningum framleiðanda.
- Alltaf nota nýjan vökva fyrir hreinsun og geymslu.
- Skipta þarf um linsubox reglulega og halda því hreinu og þurru á milli notkunar.
- Mælt er með að setja linsur í áður en annað er sett á augnsvæðið.
- Mælt er með að nota sundgleraugu ef synt er með linsur.
- Ekki sofa með linsur.
- Fjarlægið linsur úr augum og hvílið ef þreyta eða pirringur myndast.
- Grunnferilsradíus: 8.6 mm
- Ummál: 14.0 mm
- Vökvainnihald: 38%
- Efni: Polymacon
- Magn: 6 stk.
Sex stykkja pakki dugar í þrjá mánuði fyrir tvö augu og sex mánuði fyrir eitt auga.
Linsur settar í:
- Passar þarf að linsan snúi ekki öfugt.
- Leggið linsuna fremst á fingur annara handar.
- Leggið löngutöng sömu handar á neðir augnlok og togið niður.
- Notið löngutöng á hinni hendinni til að toga efri augnlok upp.
- Varlega leggið linsuna á augun og blikkið hægt þangað til hún fer á réttan stað.
Linsur teknar úr:
- Varlega lyftið upp báðum augnlokunum á sama hátt og þegar linsan er sett í og grípið með tveimur fingrum um linsuna.
- Dragið svo linsuna rólega úr.
Spyrja lækni
Mælt er með að tala við lækni ef viðkomandi er að skipta um linsur og/eða hann er ekki alveg öruggur á notkun linsa.
- Sjónin breytist. Passa þarf að nota réttan styrkleika til að fá sem bestu sjónina.
- Þvo hendur. Passa þarf að vera með hreinar hendur þegar linsur eru settar í og teknar úr.
- Fylgja leiðbeiningum. Passa þarf að fylgja leiðbeningum og aldrei nota linsur sem eru runnar út á tíma.