EGF Hydration Heroes
EGF Hydration Heroes
15 + 15 mlHydration Heroes gjafasettið sameinar okkar margverðlaunaða EGF Serum, sem vinnur á sjáanlegum öldrunarmerkjum og styður við endurnýjun húðarinnar, og vinsæla Hydrating Cream. Settið er fullkomið fyrir þau sem vilja leggja áherslu á góðan og langvarandi raka, draga úr ásýnd fínna lína og hrukka og veita húðinni heilbrigða og ljómandi ásýnd.
EGF Serum (15 ml) eru byltingarkenndir húðdropar, sérstaklega þróaðir til að vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við fínar línur og hrukkur, auka þéttleika húðarinnar og veita langvarandi raka. Serumið inniheldur aðeins 7 hrein og áhrifarík innihaldsefni, þar á meðal okkar einstaka BIOEFFECT EGF, endurnærandi vaxtarþátt sem gegnir mikilvægu hlutverki við að efla rakabindingu og viðhalda sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
Hydrating Cream (15 ml) er létt og silkimjúkt rakakrem sem veitir húðinni góðan og langvarandi raka. Formúlan sameinar rakagefandi innihaldsefni á borð við hýalúrónsýru, E-vítamín og hreint íslenskt vatn sem næra húðina, veita andoxunarvörn og stuðla að jafnari áferð og húðlit.
EGF Serum 15 ml:
· Dregur úr ásýnd hrukka og fínna lína
· Eykur og viðheldur raka í húðinni
· Þéttir og sléttir húðina
· Jafnar áferð og húðlit
· Hentar öllum húðgerðum
· Aðeins 7 innihaldsefni
· Aðeins þörf á 2-4 dropum
· Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
· Án rotvarnarefna
· Prófað af húðlæknum
Hydrating Cream 15 ml:
· Létt og nærandi formúla
· Gengur hratt og vel inn í húðina
· Veitir langvarandi raka
· Verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum
· Skilur húðina eftir mjúka, slétta og ljómandi
· Frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu
· Hentar öllum húðgerðum
· Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
· Prófað af húðlæknum
EGF Serum :
GLYCERIN, AQUA/EAU/WATER, SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM
CHLORIDE, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT, BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1
(EGF)
Hydrating Cream:
AQUA/EAU/WATER, CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID
PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURO
NATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE,
POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT,
BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1 (EGF)
Skref 1: EGF Serum: Berðu 2–4 dropa á andlit, háls og bringu með mjúkum hringlaga hreyfingum upp á við. Bíddu í 3–5 mínútur áður en aðrar vörur eru bornar á húðina. Má nota kvölds og morgna.
Skref 2: Hydrating Cream: Berðu á andlit, háls og bringu og nuddaðu upp á við með mjúkum strokum.







