EGF Pure Power
EGF Pure Power
15 + 15 +15 mlPure Power gjafasettið er vegleg gjöf fyrir þau sem eru farin að sjá sýnileg merki öldrunar, á borð við hrukkur, þurrk og ójafnan húðlit, og kjósa kraftmiklar húðvörur sem skila raunverulegum árangri.
EGF Power Serum (15 ml) er kraftmikið serum sem inniheldur tvo vaxtarþætti, BIOEFFECT EGF og BIOEFFECT KGF, og er sérstaklega þróað fyrir eldri, þroskaða og þurra húð. Húðdroparnir vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur og fínar línur, auka teygjanleika og þéttleika húðarinnar, styrkja ysta varnarlag hennar og draga úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar.
EGF Power Eye Cream (15 ml) er öflugt og nærandi augnkrem, sérstaklega þróað til að vinna á sýnilegum öldrunarmerkjum í kringum augun. Kremið dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka, dökkum baugum, þrota og þurrki ásamt því að slétta og þétta viðkvæmt augnsvæðið. Formúlan inniheldur lykilinnihaldsefnið BIOEFFECT EGF ásamt sérvöldum, virkum innihaldsefnum sem skila sýnilegum árangri.
EGF Power Cream (15 ml) er kraftmikið andlitskrem, sérstaklega þróað fyrir þroskaða húð sem þegar er farin að sjá sýnileg merki öldrunar. Kremið veitir djúpan raka, vinnur á hrukkum og fínum línum og stuðlar að jafnari áferð og húðlit, ásamt því að draga úr litabreytingum og ásýnd húðhola. EGF Power Cream er afurð áralangrar rannsókna- og þróunarvinnu og inniheldur einstaka efnaformúlu þar sem BIOEFFECT EGF gegnir lykilhlutverki. Formúlan inniheldur einnig áhrifarík innihaldsefni á borð við betaglúkan, níasínamíð, órídónín og E-vítamín.
EGF Power Serum 15 ml
· Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
· Eykur teygjanleika og þéttleika, húðin virðist stinnari
· Dregur úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar
· Styrkir ysta varnarlag húðarinnar og eykur rakabindingu
· Jafnar áferð og húðlit, húðin virðist sléttari
· Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
· Aðeins 12 innihaldsefni
· Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens
· Prófað af húðlæknum
EGF Power Eye Cream 15 ml
· Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
· Eykur þéttleika, húðin virðist stinnari
· Dregur úr baugum, þrota og þreytumerkjum
· Jafnar húðlit og dregur úr litamisfellum
· Eykur rakabindingu
· Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
· Án ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens
· Prófað af húð- og augnlæknum
EGF Power Cream 15 ml
· Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
· Eykur þéttleika, húðin virðist stinnari
· Sléttir og þéttir húðina
· Jafnar áferð og húðlit
· Dregur úr litabreytingum
· Dregur úr ásýnd húðhola
· Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
· Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
· Prófað af húðlæknum
EGF Power Serum: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), KGF (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3)
EGF Power Cream: WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, BUTYLENE GLYCOL, ONEOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, CETYL ALCOHOL, SQUALANE, SORBITOL, HYDROGENATED POLYISOBUTENE, NIACINAMIDE, TOCOPHEROL, SODIUM HYALURONATE, BETA GLUCAN, ORIDONIN, PHENOXYETHANOL, SORBITAN OLEATE, CARBOMER, XANTHAN GUM, ETHYLHEXYLGLYCERIN, POLYSORBATE 20, POTASSIUM HYDROXIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1).
EGF Power Eye Cream: WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, CETYL ALCOHOL, GLYCERIN, SORBITOL, CAFFEINE, OENOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, GLYCERYL STEARATE SE, PROPYLENE GLYCOL, CETEARYL OLIVATE, SORBITAN OLIVATE, NIACINAMIDE, SQUALANE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, BAKUCHIOL, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL POWDER, SCLEROTIUM GUM, CITRUS AURANTIFOLIA (LIME) PEEL POWDER, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, SODIUM HYALURONATE, XANTHAN GUM, CERAMIDE NG, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
Skref 1: Berðu 2-4 dropa af EGF Power Serum á hreina húð og dreifðu mjúklega með hringlaga hreyfingum upp á við.
Skref 2: Berðu EGF Power augnkremið á með því að dreifa því mjúklega með fingurgómunum á svæðið undir augum. Byrjaðu við augnkrók, haltu áfram undir auganu og upp á augnlokin þar til húðin er þurr viðkomu.
Skref 3: Berðu næst EGF Power andlitskremið á andlit, háls og bringu. Berðu kremið mjúklega á með léttum, hringlaga hreyfingum. Bíddu í 3-5 mínútur áður en farði eða sólarvörn er sett á.







