1 af 4
Mottumarssokkarnir í ár eru einstaklega litríkir og fallegir. Þeir eru hannaðir af Stefáni Svan Aðalheiðarsyni í Stefánsbúð í samstarfi við grafísku hönnuðina Anton Kaldal og Lindu Loeskow.
Hönnunin byggir á orðunum „Takk fyrir“ sem fléttast saman í lifandi og áberandi mynstri og leturgerð. Í þeim felst þakklæti til samfélagsins alls.
Mottumarssokkarnir koma í stærðum 36-41 og 42-47 og kosta kr. 3.500.
Sokkarnir passa við öll tilefni en ef mann langar að tjá sig aðeins með litum er tilvalið að næla sér í eintak af viðhafnarútgáfu sokkanna sem fást í bleiku, grænu og brúnu.
Efni:
65% bómull
32% nylon
3% elastan