1 af 6
Vellíðan í öskju X Hårklinikken stór
75 + 75 mlHárvörurnar frá Hårklinikken stuðla að sterkara og þykkara hári. Þær eru unnar úr náttúrunni og hafa fengið vottunina „Hrein vara í Lyfju“. Askjan inniheldur Balancing Shampoo 75 ml, Daily Conditioner hárnæringu 75 ml, hárhandklæði og fyrsta ráðgjöf hjá hársérfræðingi Harklinikken.
Vottunin „Hrein vara í Lyfju“ hjálpar þér að taka upplýsta ákvörðun fyrir þig og þína heilsu. Vörurnar eru yfirfarnar af faglegum ráðgjafa og eru lausar við innihaldsefni sem talin eru hafa skaðleg áhrif á þig eða umhverfið.
Balancing Shampoo 75 ml
Verðlaunasjampó sem er hannað til að djúphreinsa og styrkja hárið. Það minnkar slit samhliða því að næra og jafna pH-gildi hársvarðarins til að skapa bestu skilyrði fyrir hárvöxt.
Daily Conditioner 75 ml
Hárnæring sem veitir mikinn og endurnærandi raka sem styrkir yfirborð hársins. Hún eykur teygjanleika og getu hársins til að viðhalda raka ásamt því að minnka líkur á sliti.
Hárhandklæði
Handklæði úr 100% bómull. Þykk teygjan tryggir að handklæðið haldist vel á höfðinu og renni ekki til.
FYRSTA RÁÐGJÖF HJÁ HÅRKLINIKKEN
45 mínútna fyrsta ráðgjöf hjá hársérfræðingi. Verðmæti ráðgjafar er 14.200 kr. Í fyrstu ráðgjöfinni er ástand hárs og hársvarðar metið ásamt því að farið er yfir þá lífsstílsþætti sem geta haft áhrif á hárið og valdið meðal annars hárlosi og hárþynningu. Út frá niðurstöðum ráðgjafarinnar er sérsniðið meðferðarplan með það að markmiði að hámarka hárvöxt og heilbrigði hársins.
Balancing Shampoo
Lykilefni í Balancing Shampoo eru mustarðskorn og lífrænir hafrar.
Meðal innihaldsefna eru: Vatn (aqua), MIPA-lársúlfat, kókamíðóprópýlbetaín, PEG-4 amíð úr repjuolíu, própýlenglýkól, natríumláróýl-amínósýrur úr höfrum, natríumlevúlínat, natríumklóríð, oktadekýl-dí-t-bútýl-4-hýdroxýhýdrósinnamat, lárínsýra, sítrónusýra, kalíumsorbat.
Daily Conditioner
Aloe Vera og avókadóolía eru í aðalhlutverkum í Daily Conditioner.
Meðal innihaldsefna eru: Vatn, setearýlalkóhól, glýserín, aloeveralaufsþykkni, behenamíðprópýl dímetýlamín, avókadóolía, mjólkursýra, fenoxýetanól, bensósýra, dehýdróediksýra.
Balancing Shampoo
Bleyttu hárið, berðu Balancing Shampoo eingöngu í hársvörðinn og nuddaðu vandlega í u.þ.b. hálfa mínútu áður en þú skolar.
Ef hárið er sérstaklega þurrt er gott að setja Daily Conditioner í hárið (ekki hársvörð) og láta bíða í 2-3 mínútur áður en hárið er þvegið. Þetta verndar hárið og eykur raka.
Daily Conditioner
Skolaðu sjampóið vandlega úr og berðu hárnæringuna í hárið (ekki hársvörð), og láttu bíða í þrjár mínútur áður en þú skolar.
Ef hárið er sérstaklega þurrt er gott að bera hárnæringuna einnig í áður en hárið er þvegið.