Weightless Conditioner
Weightless Conditioner
290 mlLétt, fjölnota næring sem er tilvalin fyrir fínt, þunnt, úfið og venjulegt hár.
Weightless Conditioner er hönnuð til að greiða úr flækjum, veita ómældan raka og auka þannig mýkt, meðfærileika og gefa slétta áferð. Þessi silkimjúka blanda gerir hárið léttara, nærir það og leysir úr flókum. Næringin er einstaklega létt og inniheldur nærandi shea-smjör og sojabaunaþykkni en er laus við steinefnaolíur og sílíkonefni sem geta valdið uppsöfnun og íþyngt hárinu.
Hefur hlotið verðlaun á Costume Beauty Award 2024 — Best Hair CareCostume Beauty Award 2025 — Best Conditioner
Helstu innihaldsefni Weightless Conditioner eru shea-smjör og sojabauna-glýseríð.
Meðal innihaldsefna eru: Vatn, setarýl-alkóhól, shea-smjörs-etýlesterar, dicetyldimonium-klóríð, sojabauna-glýseríð, Butyrosperum Park (Shea) Butter Unsaponifiables, steramídóprópýyl-dímetýlamín, Sodium PCA, fenetýl-alkóhól, pentylene-glýkól, própandíól, setýl-alkóhól.
Skilin eftir í hárinu: Settu í þurrt eða rakt hár.Dreifðu litlu magni í hárið frá miðri hárlengd og fram í enda.Settu aftur í þurrt hár yfir daginn til að endurheimta líf, léttleika og slétta áferð.
Þvegin úr:Settu ríkulegt magn í blautt hárið.Nuddaðu næringunni í hárið frá miðri hárlengd og láttu bíða í þrjár mínútur áður en þú skolar. Ef hárið er sérstaklega þurrt er gott að bera hárnæringuna einnig í áður en hárið er þvegið.







