1 af 7
Infinio Sphere Ultra 70-R | 7 litir
1 stkInfinio Sphere Ultra er flaggskip Phonak í heyrnartækjum, sem býður upp á alveg nýtt og áður óþekkt stig af skýrum og greinilegum talgæðum með tveimur hljóðörgjörvum. Þetta er fyrsta heyrnartækið í heiminum með innbyggðum DEEPSONIC gervigreindar hljóðörgjörva. Eina hlutverk DEEPSONIC hljóðörgjörvans er að greina talað mál í hávaða. Heyrnartækin forgangsraða töluðu máli strax fram yfir hávaða með því að dempa niður bakgrunnshávaða og lyfta upp töluðu máli. Þetta kann að hljóma eins og einhver vinna fyrir þig en heyrnartækið sér um alla vinnuna og þú nýtur þess að vera með fólkinu þínu.
Ultra er ný hugbúnaðaruppfærsla (nóv.´25) í Infinio Sphere heyrnartækjunum sem breytir virkni þeirra töluvert.
- AutoSense 7.0 aðlagar sig 24% hraðar og nákvæmar að hlustunaraðstæðum en forveri þess. Þú nýtur því aukinna hljóðgæða og meiri skýrleika.
- Allt að 56 klukkustunda rafhlöðuending (fer eftir notkun og streymi).
- Mun einfaldari Bluetooth tenging við síma eða önnur snjalltæki.
- Aukinn stöðugleiki í tengingu og hljóðstreymi við síma/tæki
- Feedback próf loks mögulegt í fjarstillingu og nú undir 13 sekúndum
Ath. Öll Infinio heyrnartæki er hægt að uppfæra yfir í Ultra. Ekki er þörf á að kaupa nýtt tæki ef þú ert nú þegar með Infinio heyrnartæki.
Heyrnarfræðingurinn þinn stillir heyrnartækin þannig að við ákveðnar hljóðaðstæður vinnur DEEPSONIC með þér til að hámarka að þú greinir talað mál frá bakgrunnshávaða. Þannig getur þú í þínu daglega lífi heyrt eins vel og hægt er; á mannamótum, í verslunum, á veitingastöðum en líka notið þess að vera heima í rólegri aðstæðum
Tækið býr að auki yfir allri þeirri nýju tækni sem kemur fram í Infinio línunni. Dæmi: aukinn stöðugleiki í bluetooth og einföld tenging við síma, staðsetning heyrnartækja í myPhonak appinu, verulega aukin vatnsheldni, tilbúið fyrir Auracast tækni, ásamt betri frammistöðu sjálfvirkra kerfa og stillingarmöguleikum sem heyrnarfræðingurinn þinn getur nýtt með þínar þarfir í huga.
DEEPSONIC hljóðörgjörvinn:
- 22 milljónir hljóðbútar voru notaðir til að þjálfa upp örgjörvann.
- Um 7700 milljónir aðgerða á sekúndu.
- 4.5 milljónir gervigreindartengingar til úrvinnslu á hljóði.
- Frammistaða heyrnartækisins til að greina talað mál í bakgrunnshávaða er einstök og bætir greiningu um 36.7% með DEEPSONIC örgjörvanum.
- 53 sinnum meiri vinnslugeta en almennar gildandi kröfur um heyrnartæki.
Eiginleikar:
- Spheric talgreining, AutoSense OS 7.0, Adaptive Phonak Digital 3.0
- Bluetooth® tengjanleg fyrir síma, tölvur og önnur Bluetooth tæki. Allt að 8 bluetooth tæki og geta verið 2 tengd í einu.
- Vatns- og rykþolin húðun (IP68)
- Innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða
Phonak Audéo Infinio Sphere fæst í 7 litum:
- Sand Beige (P1)
- Sandalwood (P3)
- Chestnut (P4)
- Champagne (P5)
- Silver Gray (P6)
- Graphite Gray (P7)
- Velvet Black (P8)
Samhæfður viðbótarbúnaður – frí ráðgjöf og kennsla á keypt tæki hjá Lyfju Heyrn
RogerOn 3
Einstakur og fjölhæfur hljóðnemi sem færir hljóð enn nær þér og beint í heyrnartækin, hvort sem er á mannamóti, fundum eða við sjónvarpsáhorf. Fleiri en einn heyrnartækjanotandi getur tengst RogerOn og þannig heyrt betur í veislugestum og í margmenni.
Phonak TV Connector
Sendir hljóð beint í heyrnartækin þannig að þú heyrir í sjónvarpinu án þess að hljóðið sé tekið frá öðrum sem horfa með þér. Fleiri en einn heyrnartækjanotandi gengur tengst TV Connector á sama tíma.
Phonak PartnerMic
Léttur og lipur einstaklingshljóðnemi.
Phonak RemoteControl
einfaldaðu þér lífið og hækkaðu/lækkaðu í heyrnartækjunum með fjarstýringu. Hentar þeim sem eiga erfitt með að nota takkana á heyrnartækjum.
Forrit
- myPhonak (App sem gerir þér kleift að sjá rafhlöðustöðu, finna heyrnartækin, hækka/lækka og búa til þín eigin hljóðkerfi langi þig til, ásamt fleiri aðgerðum)
- Vatnsfráhrindandi eiginleikar
- IP68 vottun – vatns- og rykþolið, sem gerir tækið ónæmt fyrir stöðugri dýfingu í vatni í 1 metra dýpi í 60 mínútur og fyrir átta tíma í rykklefa í samræmi við alþjóðlega staðalinn IEC 60529.
Hvað færðu við kaup á PHONAK heyrnartækjum hjá Lyfju Heyrn?
- Árlega þjónustu og endurstillingu heyrnartækja hjá löggiltum heyrnarfræðingum
- Auðvelt aðgengi að upplýsingum, fræðslu og þjónustu við heyrnartækin í verslun okkar
- 4 ára ábyrgð á heyrnartækjum
- Lánuð heyrnartæki án viðbótarkostnaðar á meðan viðgerð stendur, ef eitthvað kæmi fyrir heyrnartækin.
- Möguleiki á fjarþjónustu í myPhonak appinu.







