EasyGuard Open Dome #3 stærðir
1 af 4
EasyGuard Open Dome #3 stærðir
Phonak EasyGuard™ fyrir minna viðhald. Phonak EasyGuard™ eru ný tegund af túðum/töppum (e. domes) fyrir Phonak heyrnartækin þín. EasyGuard er með snjallri himnu sem ver hátalarann gegn eyrnamerg og raka – án þess að hafa áhrif á hljóðgæði. Þetta þýðir einfaldara viðhald og meiri ánægju í daglegri notkun. EasyGuard er fáanlegt í nokkrum týpum og stærðum og mikilvægt er að valin sé sama týpa og heyrnarfræðingur hefur stillt heyrnartækin þín út frá. Stærð og lögun tappans skiptir máli.
Helstu kostir:
• Minnkar viðhald þar sem þú þrífur bara túðuna/tappann reglulega og þarft ekki að skipta um síur
• Verndar hátalarann gegn eyrnamerg og lengir endingartíma hans
• Skipt út á 4-6 mánaða fresti
Af hverju EasyGuard?
Eyrnamergur er ein algengasta ástæðan fyrir vandamálum í heyrnartækjum. Þótt það sé fyllilega eðlilegt að hafa eyrnamerg í hlustinni getur hann lokað fyrir hljóð, valdið ýli (feedback) eða jafnvel stöðvað virkni tækisins. Í raun eru allt að 40% heimsókna til okkar vegna hljóðtruflana út frá mergstíflu í hátalara.
Með EasyGuard færðu snjalla lausn á þessu algenga vandamáli.
Athugaðu að þú getur ekki breytt um stærð og lögun á tappa/túðunni án þess að heyrnarfræðingurinn þinn leiðbeini um slíkt. Heyrnartækin þín eru stillt út frá hvernig þessar túður/tappar eru að halda hljóði að þér. Breyting á týpu af túðu hefur áhrif á hvernig heyrnartækin vinna fyrir þig.







