Natural dömubindi
Masmi
Natural dömubindi
16 stkVörunúmer: 10134941
Verð1.089 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Dömubindi úr 100% lífrænni bómull. Hönnuð til notkunar á nóttunni. Bindin hafa ekki vængi en þau aðlagast fullkomlega og hreyfast ekki. Þessi vara gerir húðinni kleift að anda og stuðlar þannig að æskilegu pH gildi.
Þessar vörur eru 100% náttúrulegar og í þeim er eingöngu 100% náttúruleg eða lífræn bómull sem fer einstaklega vel með húðina og þá sérstaklega viðkvæmu svæðin.
Allar lífrænar vörur frá MASMI eru lífrænt vottaðar auk þess sem þær eru allar vottaðar án of-næmisvaka. Vörurnar eru framleiddar úr hreinum bómullartrefjum með einstakri tækni sem skilar betri upplifun.
Á meðal þess sem þú færð frá MASMI eru mjúk og rakadræg dömubindi, innlegg og túrtappar; allt vörur sem eru án ilmefna, innihalda ekki plastefni og hafa ekki verið settar í klór í framleiðsluferlinu. Þá eru einnig í línunni brjóstapúðar fyrir nýbakaðar mæður, bómullarskífur og fleira. Komdu til okkar í Heilsuhúsið og kynntu þér málið nánar. Prófaðu þessar frábæru vörur og taktu skref í átt að náttúrulegri lífsstíl.
MASMI er umhugað um heilsu og velferð viðskiptavina sinna, og eitt af því sem skiptir þar höfuðmáli er náttúran og umhverfið. Vöndum valið, sérstaklega þegar um er að ræða vörur fyrir húðina og mjög viðkvæma staði. Notum því meira af náttúrulegum og lífrænum vörum, þær fara betur með okkur og náttúruna.