PSORIA
50 mlMaricell™ PSORIA er íslensk húðmeðhöndlunarvara framleidd á Ísafirði og inniheldur mOmega3TM fjölómettaðar fitusýrur sem byggir á íslenskri einkaleyfavarinni tækni. MariCell PSORIA er einstaklega virk vara sérþróuð til meðhöndlunar á þykkri og hreistraðri húð og einkennum sóríasis.
- Meðhöndlar hreistraða húð og einkenni sóríasis
- Dregur úr kláða
- Losar húðflögur
- Er rakagefandi og eykur vatnsbindigetu húðarinnar
- mOmega3TM fitusýrur
- Karbamín 5%
- Ávaxtasýra 5
MariCell™ Psoria inniheldur þrjú efni sem vinna saman að því að auka heilbrigði fylliefnisins í hyrnislaginu.
- mOmega3™ sem unnið er úr sjávarfangi og inniheldur m.a. EPA og DHA fitursýrur sem húðin getur nýtt sér til að viðhalda heilbrigði fylliefnis húðarinnar.
- Ávaxtasýra (5%) Ávaxtasýra sem mýkir efsta lag húðarinnar, flýtir fyrir húðflögnun og eykur gegndræpi húðarinnar þannig að mOmega3™ fitusýrur og karbamíð eiga auðveldara með að smjúga inn í húðina.
- Karbamíð (5%) gefur húðinni raka og eykur vatnsbindigetu húðarinnar
Innihaldsefni: Vatn, Eucerinum Anhydricum, karbamíð, ávaxtasýra (AHA), paraffínolía, própýlen glýkól,
Cosmedia®C92, Steareth-100, Steareth-2, Mannan, Xanthan Gum, náttúruleg andoxunarefni, bensýl alkóhól, mOmega3 (EPA/DHA), fenoxýetanól, kalíum sorbat.
Athugið: Inniheldur ávaxtasýru, notist ekki á auma, sýkta eða rofna húð. Varist að varan berist í augu. Þvoið hendur eftir notkun. Notaðu ekki ef þú ert með ofnæmi fyrir innihaldsefnum. Gerið hlé á notkun ef húð verður rauð eða ef kláði eða óþægindi koma fram við notkun vörunnar. Psoria getur tímabundið aukið viðkvæmni húðar fyrir sólargeislum. Notist aðeins útvortis.
Geymsla: Geymið við herbergishita. Notist innan 4 vikna frá opnun. Geymið þar sem börn ná ekki til.
Notist ekki ef innsigli hefur verið rofið.
Berið kvölds og morgna aðeins á viðkvæma hluta húðarinnar. Hentar fyrir þykka og hreistraða húð með kláða. Er rakagefandi og sefandi.