SMOOTH
50 mlMariCellTM SMOOTH er íslensk húðmeðhöndlunarvara framleidd á Ísafirði og inniheldur mOmega3TM fjölómettaðar fitusýrur sem byggir á íslenskri einkaleyfavarinni tækni. MariCellTM SMOOTH er rakagefandi og sérstaklega þróuð til meðhöndlunar á húðnöbbum, þ.e. bólur á upphandlegg, lendum eða lærum og fyrir rakstursbólur eða inngróin hár.
- Mýkir bólur á upphandlegg, lendum , lærum þannig að auðvelt verði að nudda þær af
- Minnkar líkur á bólum á upphandlegg, lendum og lærum
- Minnkar líkur á rakstursbólum
- Er rakagefandi og eykur vatnsbindigetur húðarinnar.
- mOmega3TM fitusýrur
- Karbamín 10%
- Ávaxtasýra 10
MariCell™ SMOOTH inniheldur þrjú efni sem vinna saman að því að slétta húðhnökra.
- mOmega3™ sem unnið er úr sjávarfangi og inniheldur m.a. EPA og DHA fitursýrur sem húðin getur nýtt sér til að viðhalda heilbrigði fylliefnis húðarinnar.
- Ávaxtasýra (10%) mýkir húðhnökra þannig að auðveldara verður að nudda þá af. Sýran minnkar einnig líkur á inngrónum hárum.
- Karbamíð (10%) gefur húðinni raka og eykur vatnsbindigetuhúðarinnar.
Innihaldsefni: Vatn, Eucerinum Anhydricum, karbamíð, ávaxtasýra (AHA), paraffínolía, própýlen glýkól,
Cosmedia®C92, Steareth-100, Steareth-2, Mannan, Xanthan Gum, náttúruleg andoxunarefni, bensýl alkóhól,
mOmega3 (EPA/DHA), fenoxýetanól, kalíum sorbat.
Aðvörun: Inniheldur ávaxtasýru, notist ekki á auma, sýkta eða rofna húð. Varist að varan berist í augu. Þvoið
hendur eftir notkun. Notaðu ekki ef þú ert með ofnæmi fyrir innihaldsefnum. Gerið hlé á notkun ef húð verður
rauð eða ef kláði eða óþægindi koma fram við notkun vörunnar. Smooth getur tímabundið aukið viðkvæmni
húðar fyrir sólargeislum. Notist aðeins útvortist. Berið ekki á nýrakaða húð eða í húðfellingar. Notið aðeins á
andlit skv. Læknisráði.
Berið þunnt lag kvölds og morgna aðeins á stífa húð. Hentar fyrir húð með húðnöbbum, m.a. hárnöbbum (keratosis pilaris) og inngrónum hárum/rakstursbólum (pseudofolliculitis).