1 af 7
BL + eye cream
15 mlHáþróað augnkrem sem sléttir, þéttir og verndar viðkvæmt augnsvæðið. BL+ Eye Cream inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra innihaldsefna sem örva kollagenframleiðslu í húð og draga úr ásýnd fínna lína og hrukkna. Silkimjúkt og nærandi krem sem gengur hratt inn í húðina og veitir endurnýjað og ljómandi yfirbragð.
Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX.
Viðkvæmt augnsvæðið verður þéttara, sléttara og betrumbættara. Sýnileiki fínna lína og hrukkna minnkar auk þess sem húðin verður nærðari og ljómameiri.
- Ríkuleg og nærandi áferð
- Gengur samstundis inn í húðina og undirbýr hana fyrir förðun
- Prófað af húðlæknum
- Án ilmefna
- Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
- Hentar öllum húðgerðum og grænkerum
WATER (AQUA), PROPANEDIOL, LAURYL LAURATE, SQUALANE, PENTYLENE GLYCOL, C10-18 TRIGLYCERIDES, C15-19 ALKANE, CETYL PALMITATE, NIACINAMIDE, GLYCERIN, SEA WATER (MARIS AQUA), DECYL OLEATE, CALCIUM SODIUM BOROSILICATE, CETEARYL ALCOHOL, SUCROSE POLYSTEARATE, BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, LAUROYL LYSINE, MICROCRYSTALLINE CELLULOSE, SODIUM STEAROYL GLUTAMATE, SODIUM LEVULINATE, BAKUCHIOL, BISABOLOL, ECTOIN, GLYCERYL STEARATE, PRUNUS DOMESTICA SEED OIL, CITRIC ACID, PANTHENOL, CELLULOSE GUM, XANTHAN GUM, P-ANISIC ACID, TOCOPHEROL, CERAMIDE NP, SODIUM HYDROXIDE, CHLORELLA VULGARIS EXTRACT, OLEA EUROPAEA (OLIVE) OIL UNSAPONIFIABLES, LECITHIN, GENTIANA LUTEA ROOT EXTRACT, PANTOLACTONE, ALGAE EXTRACT, SILICA, HYDROGENATED VEGETABLE GLYCERIDES CITRATE.
BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni.
JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.
BAKÚSÍÓL 0.5%, innihaldsefni unnið úr fræjum Psoralea coryfolia-plöntunnar, hefur margvíslegan ávinning sem svipar til virkni retínóls. Það þéttir húðina, bætir áferð, húðtón og eykur ljóma.
NÍASÍNAMÍÐ, vatnsleysanlegt B3-vítamín, hefur margvíslegan ávinning. Fyrirbyggir skemmdir af völdum útfjólublárra geisla, styrkir varnarlag húðarinnar auk þess að bæta tón og áferð.
PANTENÓL, vatnsleysanlegt B5-vítamín, veitir raka og sefar húðina.
SERAMÍÐ veita raka og bæta lípíðforða en þau fyrirfinnast náttúrulega í húðinni. Þau gegna mikilvægu hlutverki í varnarlagi húðarinnar og gera hana mýkri og sléttari.
SKVALÍN hjálpar til við að innsigla raka í húðinni, nærir og endurheimtir mýkt.
Notið kvölds og morgna eftir hreinsun.
Berið lítið magn gætilega með baugfingri í hálfhring í kringum augun.
Byrjið við innri augnkrók undir auganu og að ytri augnkrók. Þaðan upp undir augnbein.