Hreinsiklútar fyrir farða
Masmi
Hreinsiklútar fyrir farða
20 stkVörunúmer: 10144456
Verð699 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Makeup hreinsiklútar úr 100% lífrænni bómull. Inniheldur vínber og vallhumal sem hafa bólgueyðandi eiginleika til að sefa erta húð. Hentar vel viðkvæmum húðgerðum.
Allar lífrænar vörur frá MASMI eru lífrænt vottaðar auk þess sem þær eru allar vottaðar án of-næmisvaka. Vörurnar eru framleiddar úr hreinum bómullartrefjum með einstakri tækni sem skilar betri upplifun.
Á meðal þess sem þú færð frá MASMI eru mjúk og rakadræg dömubindi, innlegg og túrtappar; allt vörur sem eru án ilmefna, innihalda ekki plastefni og hafa ekki verið settar í klór í framleiðsluferlinu. Þá eru einnig í línunni brjóstapúðar fyrir nýbakaðar mæður, bómullarskífur og fleira. Prófaðu þessar frábæru vörur og taktu skref í átt að náttúrulegri lífsstíl.
MASMI er umhugað um heilsu og velferð viðskiptavina sinna, og eitt af því sem skiptir þar höfuðmáli er náttúran og umhverfið. Vöndum valið, sérstaklega þegar um er að ræða vörur fyrir húðina og mjög viðkvæma staði. Notum því meira af náttúrulegum og lífrænum vörum, þær fara betur með okkur og náttúruna.