Waterless Enzyme Cleanser
1 af 4
Waterless Enzyme Cleanser
40 gByltingarkenndur ensímhreinsir sem veitir milda djúphreinsun og örvar endurnýjun húðar. Púðrið umbreytist í silkimjúka lausn við snertingu við vatn og fjarlægir dauðar húðfrumur og óhreinindi af yfirborði húðar á mildan en áhrifaríkan hátt. Húðin verður hrein, mjúk og endurnærð, með jafnara yfirbragð.
Lífgaðu upp á húðina með þessum byltingarkennda ensímhreinsi sem sameinar milda djúphreinsun og endurnýjun húðar í einu silkimjúku skrefi. Waterless Enzyme Cleanser er umhverfisvænn púðurhreinsir sem umbreytist í létta, silkimjúka lausn þegar hann kemst í snertingu við vatn. Sérstaklega hannaður til að djúphreinsa húðina á mildan en áhrifaríkan hátt. Formúlan inniheldur ChitoCare® Repair, sem byggir á íslensku sjávarkítósani, papaín (náttúruleg ensím), ávaxtakjarna og jarðhitakísil sem hjálpa til við að fjarlægja dauðar húðfrumur og önnur óhreinindi, á sama tíma og hann örvar endurnýjun, frískar upp á líflausa húð og afhjúpar heilbrigðan ljóma. Þessi einstaka blanda skilur húðina eftir hreina, silkimjúka, endurnærða og með jafnara yfirbragð. Regluleg notkun stuðlar að mýkri og sléttari húð sem ljómar af náttúrulegri fegurð.
Með ChitoCare Repair®, sem er einstök einkaleyfisvarin innihaldsefnablanda úr hágæða sjávarkítósani með kraftmikla andoxunarvirkni sem styður við endurnýjun húðarinnar, bætir rakastjórnun, dregur úr sýnilegum merkjum öldrunar og veitir húðinni aukna vernd.
98,7% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna
Prófað af húðlæknum
Hreinsirinn hentar öllum húðgerðum.
Fyrir viðkvæma húð er ráðlagt að nota hann sem mildan djúphreinsi 1–3 sinnum í viku.
Virk innihaldsefni: Sjávarkítósan, Papaya ávaxtakjarni, Papaín, Próteasi, Kísill
Innihald: Sorbitol, Oryza Sativa (rice) Starch, Sodium Lauroyl Glutamate, Maltodextrin, Aqua (water), Chitosan, Carica Papaya (papaya) Fruit Extract, Succinic Acid, Papain, Solum Diatomeae, Protease 4"







