Icelandic Water Mist
1 af 5
Icelandic Water Mist
70 mlRakagefandi og frískandi andlitssprey sem veitir húðinni skjótan raka og endurnærandi ljóma. Icelandic Water Mist róar húðina, bætir ásýnd hennar og dregur úr þreytumerkjum. Formúlan inniheldur íslenskt vatn sem er einstaklega milt fyrir húðina og lykilþáttur í gæðum vörunnar. Andlitsspreyið má nota eins oft yfir daginn og þörf er á og er fullkominn rakagjafi yfir daginn. Það leggst fallega yfir farða og veitir húðinni heilbrigða og ljómandi ásýnd.
Létt og frískandi andlitssprey sem veitir húðinni skjótan raka.
Icelandic Water Mist gefur húðinni raka, endurnærðan ljóma og ferskari ásýnd. Formúlan nýtir blöndu rakagefandi innihaldsefna, þar á meðal íslensks vatns og inositol, sem hjálpar til við að draga úr sýnilegum þreytumerkjum, bæta áferð og skilja húðina eftir endurnærða, mjúka og ljómandi.
Íslenska vatnið gegnir lykilhlutverki í gæðum BIOEFFECT vara. Það kemur úr náttúrulegum uppsprettum á Íslandi sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki, sem gerir vatnið síður líklegt til að þurrka eða erta húðina. Því hentar það einstaklega vel í framleiðslu húðvara og stuðlar að einstökum gæðum Icelandic Water Mist.
2–3 sprey nægja til að lífga upp á húðina og hjálpa til við að viðhalda heilbrigðu rakajafnvægi. Spreyið hentar afar vel til reglulegrar notkunar yfir daginn, sérstaklega fyrir þau sem eru mikið á ferðinni eða sem viðbótarskref í húðmeðferð.
· Veitir skjótan raka
· Dregur úr sýnilegum þreytumerkjum
· Bætir áferð húðarinnar
· Endurnærir, kælir og róar húðina
· Inniheldur hreint og mjúkt íslenskt vatn
· Aðeins 11 hrein innihaldsefni
· Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
· Hentar öllum húðgerðum
· Prófað af húðlæknum
Water (Aqua), Glycerin, Xylitol, Inositol, Butylene Glycol, Propylene Glycol, Tri-sodium Citrate, Phenoxyethanol, Magnesium Gluconate, Sodium Hyaluronate, Citric Acid.
Lokaðu augunum og spreyjaðu 2–3 sinnum yfir andlit og háls. Leyfðu húðinni að drekka rakann í sig. Hentar vel bæði undir og yfir farða og má nota eins oft og þörf krefur yfir daginn.







