30 Day Power Treatment
3x5 ml30 Day Power Treatment er kraftmikið 30 daga húðátak sem vinnur á áhrifaríkan hátt á sjáanlegum aldursmerkjum á borð við fínar línur og hrukkur, þurrk, litabreytingar og slappleika húðar. Serumið inniheldur þrjá öfluga vaxtarþætti, EGF, KGF og IL-1a, sem framleiddir eru í byggi með aðferðum plöntulíftækni. Umbreyttu ásýnd húðarinnar með þessari einstöku formúlu og orkuskoti, sem þéttir og sléttir húðina sjáanlega á aðeins 30 dögum. Hver flaska inniheldur 10 daga skammt.
Serum í hæsta gæðaflokki sem inniheldur 3 virka og áhrifaríka vaxtarþætti.
Þessi öfluga meðferð inniheldur þrjá vaxtarþætti, EGF, KGF og IL-1a, sem framleiddir eru í byggi með aðferðum plöntulíftækni.
BIOEFFECT EGF: Hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnkar þannig sýnilega fínar línur og hrukkur, ásamt því að þétta og slétta húðina. EGF er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur sem er lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðar.
BIOEFFECT KGF: Boðskiptaprótín sem styður við náttúrulegt endurnýjunarferli húðarinnar, styrkir varnarlag hennar og viðheldur heilbrigðri ásýnd.
BIOEFFECT IL-1a: Innihaldsefni sem styrkir húðina og viðheldur þéttleika hennar.
Með hækkandi aldri dvínar magn náttúrulegra vaxtarþátta í húðinni. BIOEFFECT vaxtarþættirnir í formúlunni vinna í sameiningu gegn sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur, þurrk, slappleika húðar, litabreytingar, ásamt því að draga úr ásýnd húðhola.
30 Day Power Treatment er sérstaklega þróað til að veita skjótan og sýnilegan árangur. Meðferðin inniheldur þrjár flöskur og hver flaska inniheldur 10 daga skammt. Notið kvölds og morgna til að tryggja hámarksárangur. Húðátak sem við mælum með að taka 1–4 sinnum á ári, 30 daga í senn.
- Dregur sjáanlega úr fínum línum
- Eykur þéttleika húðar
- Eykur og viðheldur rakastigi húðarinnar
- Húðin verður sléttari og þéttari
- Jafnar húðlit
- Dregur úr ásýnd húðhola
- Hentar öllum húðgerðum
- Aðeins 9 hrein og náttúruleg innihaldsefni
- Aðeins er þörf á 3– 4 dropum í hvert skipti
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Án rotvarnarefna
- Prófað af húðlæknum
Staðfestur árangur
Samkvæmt sjálfstæðri innanhússrannsókn þar sem árangur var mældur með VISIA Skin Analysis kerfinu og þátttakendur notuðu 30 Day Treatment tvisvar á dag í 30 daga.
- Allt að 63% aukning á teygjanleika húðar
- Allt að 176% aukning á raka húðar
- Allt að 84% minnkun á ásýnd hrukka og fínna lína
BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor): Hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnkar því sýnilega fínar línur og hrukkur og þéttir og sléttir húðina. EGF er lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðar þar sem það er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur.
BIOEFFECT KGF (Keratinocyte Growth Factor): Boðskiptaprótín úr byggi sem styður við náttúrulegt endurnýjunarferli húðarinnar, styrkir varnarlag hennar og viðheldur heilbrigðri ásýnd.
BIOEFFECT IL-1a (Interleukin-1 alpha): Boðskiptaprótín úr byggi sem styrkir húðina og viðheldur þéttleika hennar.
Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.
Innihaldsefnalisti
GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), IL-1A (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-17), KGF (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3)
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.







