Bergamot ilmkjarnaolía
Jurtaapótekið
Bergamot ilmkjarnaolía
10 mlVörunúmer: 10172921
Verð2.712 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Bergamot (Citrus bergamia). Olían er upplífgandi, bólgueyðandi, bakteríudrepandi og krampastillandi. Hún er góð við þunglyndi og blöðrubólgu. Hún er róandi og linar liðverki ef hún er borin á liðina. Hún örvar einni meltingu og er góð til að minnka ör og bletti á húð.
Virk efni: M.a. limonen, linalool, geraniol, bergapten og kúmarín.
Varúð: Forðist sólarljós í smá tíma eftir að olían er borin á húð því hún getur aukið ljósnæmni.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: setjið 5-10 dropa af hreinum ilmkjarnaolíum út í baðvatn.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.