Frankincense ilmkjarnaolía
1 af 2
Jurtaapótekið
Frankincense ilmkjarnaolía
10 mlVörunúmer: 10172963
Verð5.298 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
1 af 2
Djúpur og jarðbundinn ilmur sem tengist kyrrð og jafnvægi. Hentar vel í slökun, hugleiðslu og rólegt andrúmsloft. Tilvalin í ilmlampa, bað, nuddolíu eða sauna.
Frankincense ilmkjarnaolía hefur djúpan, heitan og jarðbundinn ilm sem hefur verið notaður í árþúsundir í ilmblöndum og hugleiðslu.
Hún er vinsæl í ilmmeðferð fyrir róandi og jarðtengjandi eiginleika og er oft notuð þegar óskað er eftir kyrrð og jafnvægi í daglegu lífi.
Í húðvörum er hún gjarnan notuð í þynntri blöndu til að styðja við jafnvægi húðar og gefa henni frísklegra og sléttara yfirbragð. Hún hentar vel í olíublöndur fyrir þroskaða eða feita húð.
Virk efni: M.a. alfa-pinen, actanol, linalool, acetate og incensol.
Boswellia carterii oil, Limonene.
Varúð
Þynnið fyrir notkun á húð. Ekki til inntöku. Forðist snertingu við augu og slímhúð. Hættið notkun ef erting kemur fram. Leitið ráða hjá lækni á meðgöngu."