Timían ilmkjarnaolía
Jurtaapótekið
Timían ilmkjarnaolía
5 mlVörunúmer: 10172938
Verð1.450 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Timian (rautt) (Thymus vulgaris). Olían er krampastillandi, góð við gigt, sótthreinsandi, bakteríudrepandi, styrkjandi, vindeyðandi, vökvalosandi, jafnar hormóna, lagar ör, slímlosandi, blóðþrýstingshækkandi, skordýrafæla, örvandi og er góð fyrir hjartað. Góð á vöðva við þreytu og spennu. Olían er góð við kvefi og hún bætir ónæmiskerfið. Mjög góð við gigt þar sem hún bætir blóðflæði og er krampastillandi.
Virk efni: M.a. alfa-thujon, alfa- og beta-pinen, linalool, borneol, thymol og carvacrol.
Varúð: Ekki fyrir fólk með of háan blóðþrýsting.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: setjið 5-10 dropa af hreinum ilmkjarnaolíum út í baðvatn.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.