Amphora Aromatics
Arnikuolía
100 mlVörunúmer: 10170254
Verð3.199 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Arnika er náttúrulega róandi fyrir húð og vöðva. Hún getur róað og dregið úr kláða og roða í viðkvæmri húð, getur dregið úr vöðvaverkjum og er þannig góð til að nota eftir áreynslu og/eða meiðsli. Hún getur minnkað bólgur og hjálpað til við að græða sár. Arniku olía hefur lengi verið notuð við allskonar meiðslum s.s. tognun og mari. Vinsæl olía hjá íþróttafólki.
Arniku olíu má nota eina sér eða blanda henni með öðrum grunnolíum og ilmkjarnaolíum til að ná fram sérstakri virkni. Arniku olía og birki olía eru t.d. góð blanda til að nota eftir líkamsræktina til að draga úr líkum á vöðvaþreytu eftir æfingar. Eins má nota bólgueyðandi Ilmkjarnaolíur s.s. Eucalyptus, Lavender og Rósmarín út í Arniku olíu til að nudda auma vöðva, eða með kamfóru til að lina gigtarverki.
Arnika kemur upprunalega frá fjallasvæðum í Evrópu og er löng hefð fyrir að nota hana til að draga upp mar sem liggur djúpt í vefjum og vöðvum.
Prunus amygdalus dulcis olíu (sæt möndluolía) og Arnica montana blóma extract.
Varúð: Arniku olía er eingöngu ætluð til útvortis notkunar og ætti ekki að nota á opin sár. Geymist þar sem börn ná ekki til. Geymist fjarri sólarljósi.