Vermox
100,00 mg - 6 stkMebendazól, virka efnið í Vermox, er breiðvirkt ormalyf og er það t.d. notað við njálg. Það eyðir ormunum með því að trufla meltingarstarfsemi þeirra og hefur auk þess áhrif á þroska eggja. Njálgur er lítill innyflaormur og er algengasta sníkjudýr hjá börnum og fullorðnum í löndum með svipað veðurfar og hjá okkur. Smitun verður á þann hátt að egg berst frá smituðum einstaklingi og í munn annars.
Eggin klekjast fljótt út í meltingarfærunum og dýrin ná fullum þroska í neðri hluta þarmanna á 2-6 vikum. Kvendýrin skríða síðan út úr endaþarminum, oftast að næturlagi og verpa eggjum sínum í húðfellingar og festa þau þar með límkenndu efni. Hreyfingar ormanna og límið sem þeir festa eggin með valda kláða. Ekki er með vissu vitað til þess að njálgur valdi öðrum óþægindum en kláða og margir þeirra sem ganga með njálg hafa engin einkenni. Spóluormasýking, bandormasýking og sullaveiki eru mjög sjaldgæfar hér á landi en þessar sýkingar verða vanalega þegar menn umgangast sýkt dýr.
Notkun:
- Fullorðnir og börn, við njálg: 100 mg einu sinni. Endurtakist eftir 2-3 vikur. Við spóluormum og þráðormasýkingu: 100 mg í senn 2svar á dag í 3 daga í röð.
- Við sullaveiki: 200 mg í senn 2svar á dag í 3 daga í röð.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.