Herbimoss
Herbimoss
3,00 mg - 16 stkHerbimos eru munnsogstöflur og er notað við hálsbólgu og þurrum hósta.
Herbimos er hefðbundið náttúrulyf sem notað er til að draga úr ertingu í slímhúð í munni og koki ásamt þurrum hósta, hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri.
Herbimoss er notað til að draga úr ertingu í munni og koki ásamt þurrum hósta, hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri. Herbimoss munnsogstafla inniheldur útdrátt úr íslenskum fjallagrösum (Cetraria islandica (L.) Acharius s.l.). Lyfið er svokallað hefðbundið náttúrulyf sem notað er við tilgreindum ábendingum, byggt á langri reynslu en ekki klínískum rannsóknum. Helstu innihaldsefni í útdrættinum eru jurtaslím (mucilages) sem talið er að þekji slímhúð í efri hluta öndunarvegar og myndi verndandi lag, sem bælir hóstaviðbragð af völdum ytra áreitis og léttir á þurrum og ertandi hósta. Einnig er talið að jurtaslím bindi vatn á yfirborði slímhúðarinnar og viðhaldi þannig raka í þurri og ertri slímhúð í munni og koki.
1 munnsogstafla átta sinnum á dag. Það á ekki að borða eða drekka strax eftir að lyfið er tekið, þar sem það gæti fjarlægt lyfið of snemma af slímhúð í munni og koki.







