Lyf
Hjartamagnýl
75,00 mg - 100 stkVörunúmer: 427289
Verð1.159 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Hjartamagnýl inniheldur virka efnið asetýlsalicýlsýru. Í stærri skömmtum (500-1000 mg) hefur efnið bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi verkun en í minni skömmtum (75-150 mg) hemur efnið samloðun blóðflaga og lengir storknunartíma blóðs. Hjartamagnýl er notað til blóðþynningar. Það er notað fyrirbyggjandi gegn blóðtappamyndun, það minnkar líkur á blóðþurrðareinkennum frá heila og á slagi og er líka notað fyrirbyggjandi hjá sjúklingum með hjartaöng og hjartadrep.
Notkun:
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.