Glýcerýlnítrat, virka efnið í Nitroglycerin DAK, er æðavíkkandi efni sem hefur mest áhrif á bláæðar og kransæðar. Víkkun bláæða veldur því að blóðflæði til hjartans minnkar en þá dregur úr álagi á hjartað og súrefnisþörf hjartavöðvans.
Víkkun kransæða veldur auknu blóðflæði um hjartavöðva. Nitroglycerin DAK tungurótartöflur eru notaðar við bráðri hjartaöng.
Notkun:
- 0,25-0,50 mg í senn við fyrstu einkennum, á 5 mín. fresti eftir þörfum, mest 3 töflur á 15 mín.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.