Lyf
Daktacort
15 gVörunúmer: 539783
Verð1.789 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Daktacort inniheldur tvö virk efni, míkónazól og hýdrókortisón. Míkónazól hefur sveppadrepandi áhrif. Það vinnur á margar sveppategundir sem er algengt að valdi sýkingum og lyfið er borið staðbundið á húð.
Hýdrókortisón er sterahormón, notað staðbundið, og til að draga úr bólgum, kláða og ofnæmiseinkennum. Lyfið bælir myndun á efnum sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið. Daktacort hentar þess vegna vel þegar sveppasýkingin veldur ákafri ertingu í húð.