Lyf
Mildison Lipid
10,00 mg/g - 30 gVörunúmer: 436334
Verð2.409 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Heimilt er að selja takmarkað magn lyfsins í lausasölu, mest 30 g handa einstaklingi
Lyfið er notað staðbundið til þess að draga úr bólgum, kláða og ofnæmiseinkennum, en það bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið.
Mildison Lipid inniheldur hýdrókortisón en það er sterahormón sem myndast í nýrnahettunum. Sterar sem eru notaðir í húðlyf skiptast gróflega í 4 flokka eftir styrkleika. Hýdrókortisón er vægur steri og tilheyrir flokki 1, vægasta flokknum. Lyfið er notað við exemi og öðrum húðsjúkdómum þar sem sterar eiga við.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.