Lyf
Strefen Apelsin
8,75 mg - 16 stkStrefen Orange Sukkerfri inniheldur virka efnið flurbiprofen sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast bólgueyðandi gigtarlyf (NSAID). Þessi lyf verka með því að breyta því hvernig líkaminn bregst við sársauka, bólgu og háum hita. Strefen Orange Sukkerfri er notað til að draga tímabundið úr einkennum óþæginda í hálsi eins og verk í hálsi, eymslum og bólgu í hálsi og erfiðleikum við að kyngja hjá fullorðnum og börnum eldri en 12 ára.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.
Notkun:
- Settu eina munnsogstöflu upp í munninn og sjúgðu hana hægt. Ávallt skal velta munnsogstöflunni um í munninum á meðan hún er sogin. Nota má eina munnsogstöflu á 3-6 klukkustunda fresti, eftir þörfum þó mest 5 munnsogstöflur á sólarhring. Ekki nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa, nema í samráði við lækni. Ef þér líður ekki betur, þér hefur versnað, eða ný einkenni koma fram skaltu hafa samband við lækninn eða lyfjafræðing
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 425919
Verð2.389 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.