Lyf
Nezeril nefdropar
0,50 mg/ml - 2 mlNezeril er við nefstíflum og miklu nefrennsli. Oxýmetazólín, virka efni lyfsins, veldur því að æðar í nefslímhúðinni dragast saman. Við þetta minnka bólgur í nefslímhúðinni og dregið er úr slímmyndun.
Lyfið er einnig notað sem stuðningsmeðferð við miðeyrnabólgu ef hún stafar af stíflu í kokhlust og handa nýfæddum börnum sem eiga erfitt með að sjúga vegna nefstíflu. Ef oxýmetazólín er notað lengur en 10 daga í senn eykst hætta á því að langvarandi bólga í nefslímhúð komi fram þegar notkun lyfsins er hætt.
Vörunúmer: 054403
Verð1.799 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
- Lyfið er notað 2-3svar á dag. Skammtastærðir fara eftir aldri og því lyfjaformi sem er notað. Lestu vandlega leiðbeiningar um skömmtun sem fylgja með lyfinu.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.