Lyf
Ovestin
0,50 mg - 15 stkVörunúmer: 372571
Verð2.529 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Estríól er náttúrulegt kvenhormón. Það hefur svipuð áhrif en nokkuð styttri verkunartíma en estradíól, sem er virkasta estrógen líkamans. Estríól er notað til að vega upp einkenni estrógenskorts, t.d. eftir tíðahvörf.
Estrógenskortur leiðir til hrörnunar í slímhúð legs og legganga. Í kjölfarið geta fylgt bólgur og aukin hætta á sýkingum. Þegar estríól er notað staðbundið í formi legkrems eða legstíla dreifist það lítið um líkamann og áhrif þess eru að mestu bundin við leg og leggöng. Ef estríól er notað eitt sér getur það valdið ofvexti í slímhúð legsins. Því er æskilegt að nota prógesterón, annað kvenhormón, reglulega á hverju tímabili en saman viðhalda þessi hormón jafnvægi í slímhúðinni.
Notkun:
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.