Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Eftir tíðahvörf hætta eggjastokkarnir að framleiða estradíól og prógesterón. Hormónameðferðin miðast að því að vega skortinn upp sem verður og að slá á einkenni sem eru samfara honum.
Vagidonna legtafla er notað staðbundið í leggöng og hefur aðeins áhrif á legslímhúðina en almenn áhrif þess eru lítil sem engin, t.d. á bein. Lyfið er ætlað konum við slímhúðarrýrnun í leggöngum vegna skorts á estrógeni eftir tíðahvörf.
Notkun:
- 1 legtafla daglega í upphafi meðferðar í 2 vikur. 1 legtafla 1 sinni til 2 svar í viku í framhaldi af því, hafa skal 3-4 sólarhringa á milli skammta.