Candizol, sem inniheldur virka efnið flúkónazól, er sveppahemjandi lyf. Það raskar starfsemi í frumum sveppa og hindrar vöxt þeirra. Flúkónazól hefur áhrif á margar sveppategundir og er oft notað við sveppasýkingum í slímhúð, leggöngum, þvagfærum og húð.
Það er einnig notað til að fyrirbyggja sveppasýkingar hjá einstaklingum með bælt ónæmiskerfi. Aukaverkanir flúkónazóls eru flestar vægar og það þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir þess eru tíðari eftir því hvað skammtarnir eru stórir eða tíminn langur sem það er tekið.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.