Lyf
Fluconazol Krka
150,00 mg - 1 stkFluconazol Krka, sem inniheldur virka efnið flúkónazól, er sveppahemjandi lyf. Það raskar starfsemi í frumum sveppa og hindrar vöxt þeirra.
Flúkónazól hefur áhrif á margar sveppategundir og er oft notað við sveppasýkingum meðal annars í slímhúð, leggöngum, þvagfærum og húð. Það er einnig notað til að fyrirbyggja sveppasýkingar hjá einstaklingum með bælt ónæmiskerfi. Aukaverkanir flúkónazóls eru flestar vægar og það þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir þess eru tíðari eftir því hvað skammtarnir eru stórir eða tíminn langur sem það er tekið.
Notkun:
- Sveppasýking í fæðingarvegi: einn stakur 150 mg skammtur. Meðferðarlengd fer eftir klínískri svörun eða niðurstöðum rannsókna. Hylkin gleypist heil.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 531175
Verð1.478 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.