Paracet munndreifitöflur (Heilsa)
250,00 mg - 12 stkParacet 250mg munndreifitöflur með bananabragði
Paracetamól er verkjastillandi og hitalækkandi. Það hentar við vægum verkjum sé engin bólga fyrir. Verkjastillandi áhrif paracetamóls eru sambærileg við asetýlsalicýlsýru (aspirín). Paracetamól er einnig notað til að slá á sótthita. Það ertir ekki magaslímhúð og hentar þeim sem hafa fengið magasár eða eru viðkvæmir í maga. Paracet endaþarmsstílar eru einkum ætlaðir ungabörnum til verkjastillingar og hitalækkunar.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Hjá börnum yngri en 3 ára skal leysa munndreifitöflurnar upp í teskeið af vatni eða mjólk til að forðast
það að brot úr töflunni berist í öndunarveg. Notið ekki ávaxtasafa þar sem þeir geta valdið beisku
bragði. Hjá börnum eldri en 3 ára má leysa munndreifitöflurnar upp í munni.