Magnesia DAK
Magnesia DAK
500,00 mg - 100 stkMagnesíumhýdroxíð tilheyrir flokki hægðalyfja sem eru sölt. Hægðalosandi virkni lyfsins felst í því að magnesíumhýdroxíð bindur vatn í þörmunum þannig að hægðirnar verða þynnri og þarmarnir þenjast út og örva þannig þarmahreyfingar. Magnesíumhýdroxíð binst einnig magasýrum eftir inntöku og minnkar þannig virkni þeirra og er því einnig notað við ofmyndun magasýru en hún veldur magaóþægindum, brjóstsviða og nábít. Of mikil myndun magasýru í langan tíma getur leitt til sáramyndunar í vélinda, maga og skeifugörn.
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Við hægðatregðu: 1000-1500 mg eftir þörfum. Sýrubindandi: 500-1000 mg eftir þörfum.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Við hægðatregðu eru það 6-8 klst.
Verkunartími:
6-8 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ef lyfið er tekið við tilfallandi einkennum má hætta töku þess þegar einkennin eru ekki lengur til staðar.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Getur haft áhrif á magn kalks og fosfórs í líkamanum. Ekki skal nota lyfið í langan tíma nema í samráði við lækni.







