Esomeprazol Actavis
20,00 mg - 14 stkVirka efnið esómeprazól dregur úr myndun á magasýru. Það er notað við bólgu í vélinda af völdum bakflæðis magasýru og líka við einkennum sjúkdóma af völdum bakflæðis frá maga í vélinda.
Lyfið þykir henta í langtímameðferð til að koma í veg fyrir að bólga í vélinda, sem hefur verið læknuð, taki sig upp að nýju. Auk þess er esómeprazól notað ásamt sýklalyfjum við sýkingu af völdum bakteríunnar Helicobacter pylori. Ef ekki tekst að uppræta Helicobacter pylori-sýkingu veldur hún endurteknum maga- og skeifugarnarsárum, en til þess að vinna á bakteríunni þarf bæði sýklalyf og lyf sem draga úr magasýruframleiðslu. Esómeprazól hindrar seyti magasýru úr sýrumyndandi frumum. Með því dregur það úr framleiðslu magasýrunnar.
Notkun:
- 20-40 mg á dag. Fyrir sjúklinga sem eiga erfitt með að kyngja má einnig sundra töflunum í hálfu glasi af ókolsýrðu vatni. Ekki má nota aðra vökva þar sem sýruhjúpurinn gæti leyst upp. Hræra skal í þar til töflurnar hafa sundrast og drekka vökvann ásamt kúlunum strax eða innan 30 mínútna. Skola skal glasið með hálfu glasi af vatni og drekka það. Kúlurnar má hvorki má tyggja né mylja.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.