Gaviscon
120 stkAlgínsýra er efni sem hindrar það að innihald magans flæði til baka og upp í vélinda. Algínsýra binst sýru í maga og myndar hlaupkenndan massa með magainnihaldinu. Magainnihaldið verður því meira þykkfljótandi og slettist síður upp í vélinda.
Algínsýra er notuð við bólgum í maga vegna offramleiðslu magasýru og líka við bólgum í vélinda vegna uppflæðis magainnihalds. Algínsýra er hér í samsetningu með sýrubindandi saltsamböndum, álhýdroxíði og natríumhýdrógenkarbónati sem draga enn frekar úr áhrifum magasýrunnar.
Notkun:
Fullorðnir og börn eldri en 2ja ára: 1-3 tuggutöflur eða 10-20 ml af mixtúru eftir máltíðir og fyrir svefn. Börn 6 mán-2ja ára: 5-10 ml af mixtúru á dag eftir þörfum. Börn yngri en 6 mánaða. 1-2 ml af mixtúru á dag fyrir hvert kg líkamsþyngdar. Gefið börnum í nokkrum skömmtum eftir hverja máltíð. Tyggja skal töflurnar áður en þeim er kyngt.