Lyf
Lansoprazol Krka
15,00 mg - 56 stkVirka efnið lansóprazól dregur úr myndun á magasýru. Það er notað við brjóstsviða, sársjúkdómi í maga og skeifugörn og bólgu í vélinda vegna bakflæðis magasýru.
Það er einnig notað ásamt sýklalyfjum við sýkingu af völdum bakteríunnar Helicobacter pylori. Ef ekki tekst að uppræta Helicobacter-sýkingu veldur hún endurteknum magasárum, en til þess að vinna á bakteríunni þarf bæði sýklalyf og lyf sem draga úr magasýruframleiðslu. Lansóprazól hindrar losun magasýru úr sýrumyndandi frumum og dregur með því úr framleiðslu magasýru. Aukaverkanir lyfsins eru fátíðar og fæstar þeirra eru alvarlegar.
Notkun:
- 15-30 mg á dag. Hylkin gleypist heil með vatnsglasi a.m.k. 30 mín fyrir mat. Má hvorki tyggja þau né mylja.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 069596
Verð3.794 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.