Natriumbikarbonat Meda
1,00 g - 100 stkLyfið inniheldur natríumhýdrógenkarbónat sem flokkast sem sýrubindandi lyf.
Í minni skömmtum er natríumhýdrógenkarbónat notað við of háum magasýrum í samsetningu með öðrum lyfjum. Natriumbikarbonat er notað við of mikilli sýru í líkamanum og einnig til að gera þvag basískt, t.d. vegna nýrnasjúkdóma. Til að meta áhrif lyfsins er mælt með því að fylgst sé með sýrustigi þvags með þvagstrimlum.
Notkun:
Skömmtun er einstaklingsbundin og ákveðin af lækni hverju sinni.
Natriumbikarbonat Meda er notað við of mikilli sýru í líkamanum (blóðsýringu) og til að minnka sýru í þvagi (gera þvagið basískt).
Skömmtun er einstaklingsbundin og ákveðin af lækni hverju sinni.
Blóðsýring: Venjulegir skammtar eru 1-6 g á sólarhring. Við blóðsýringu af völdum truflunar á starfsemi í nýrnapíplum gæti þurft fleiri tugi gramma á sólarhring.
Til að gera þvag basískt: 1-2 töflur þrisvar sinnum á sólarhring (t.d. við meðhöndlun á gigt með próbenecíði).