Lyf
Omeprazol Actavis
20,00 mg - 14 stkÓmeprazól, virka efnið í lyfinu, dregur úr myndun á magasýru. Það er notað við sársjúkdómi í maga og skeifugörn og bólgu í vélinda vegna bakflæðis magasýru.
Það er einnig notað ásamt sýklalyfjum við sýkingu af völdum bakteríunnar Helicobacter pylori. Ef ekki tekst að uppræta Helicobacter-sýkingu veldur hún endurteknum magasárum en til þess að vinna á henni þarf bæði sýklalyf og lyf sem minnka magasýruframleiðslu. Ómeprazól hindrar seyti magasýru úr sýrumyndandi frumum. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru. Aukaverkanir lyfsins eru fátíðar og fæstar þeirra alvarlegar.
Notkun:
- 20-40 mg á dag í 1-2 skömmtum. Hylkin gleypist heil með vatnsglasi.
- Má hvorki tyggja þau né mylja.
- Hylkin má opna, blanda út í matskeið af safa og drekka.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 066862
Verð969 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.