Lyfjakol eru notuð við bráðar og yfirvofandi eitranir.
Lyfjakol hafa mjög stórt yfirborðsflatarmál sem gefur þeim aðsogandi eiginleika og geta þau bundið mörg efni sem við inntöku eru hættuleg líkamanum og þannig dregið úr eitrunaráhrifum þeirra. Því fyrr sem lyfjakolin eru tekin inn því betri árangur hafa þau þar sem minna nær að frásogast af efninu. Þegar eitranir eiga sér stað skal ávallt hafa samband við lækni eða bráðamóttöku.
Notkun:
Skammtastærð fer eftir því hve mikið talið er að hafi verið tekið inn af eitrinu, þyngdarhlutfall ætti að vera 10 hlutar af lyfjakolum á móti 1 hluta af eitri. Oftast hentar að gefa fullorðnum 150 ml í upphafi og 70 ml handa börnum.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.