Lyf
Gaviscon (Heilsa)
120 stkVörunúmer: 467065
Verð5.719 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Algínsýra er efni sem hindrar það að innihald magans flæði til baka og upp í vélinda. Algínsýra binst sýru í maga og myndar hlaupkenndan massa með magainnihaldinu. Magainnihaldið verður því meira þykkfljótandi og slettist síður upp í vélinda.
Algínsýra er notuð við bólgum í maga vegna offramleiðslu magasýru og líka við bólgum í vélinda vegna uppflæðis magainnihalds. Algínsýra er hér í samsetningu með sýrubindandi saltsamböndum, álhýdroxíði og natríumhýdrógenkarbónati sem draga enn frekar úr áhrifum magasýrunnar.
Notkun:
Töflur: Fullorðnir: 1-3 tuggutöflur eftir þörfum um það bil 30 mínútum eftir máltíð og fyrir svefn eða samkvæmt fyrirmælum læknis.
Börn: Gaviscon tuggutöflur má aðeins nota handa börnum yngri en 15 ára samkvæmt læknisráði.