Lyf
Movicol
13,80 g - 50 pokarLyfið heitir Movicol, mixtúruduft, lausn í stakskammtaíláti. Það er hægðalyf sem notað er við langvinnri hægðatregðu.
Það er ekki ráðlagt handa börnum yngri en 12 ára. Movicol kemur jafnvægi á þarmahreyfingar jafnvel þótt hægðatregðan hafi staðið yfir lengi. Movicol hjálpar við að leysa upp harðar og inniklemmdar hægðir.
Notkun:
- Langvinn hægðatregða Fullorðnir: 1 stakskammtaílát, 1-3 svar sinnum á dag, eftir því hve alvarleg hægðatregðan er. Innihald hvers stakskammtaíláts er leyst upp í ½ glasi af vatni (125 ml). Venjulega varir meðferð með Movicol ekki lengur en 2 vikur. Meðferðina má endurtaka eða læknirinn getur ráðlagt lengri meðferð með Movicol en 2 vikur.
- Harðar inniklemmdar hægðir Fullorðnir: 8 stakskammtaílát, tekið inn á 6 klst. Innihald 8 stakskammtaíláta er leyst upp í 1 lítra af vatni, sem má ekki standa lengur en 6 klst. Venjulega varir meðferð ekki lengur en í 3 daga.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 530188
Verð7.599 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.