Lyf
Movicol Junior Neutral
6,90 g - 30 pokarMovicol Junior Neutral er mixtúruduft, lausn í stakskammtaíláti. Lyfið er notað til meðferðar á langvinnri hægðatregðu hjá börnum á aldrinum 2-11 ára. Movicol Junior kemur jafnvægi á þarmahreyfingar jafnvel þótt hægðatregðan hafi staðið yfir lengi. Það hjálpar við að leysa upp harðar og inniklemmdar hægðir.
Notkun:
- Venjulegur upphafsskammtur er 1 stakskammtaílát á dag fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og 2 stakskammtaílát á dag fyrir börn á aldrinum 7-11 ára. Skammta má auka eða minnka í þeim tilgangi að ná reglubundnum mjúkum hægðum. Hámarksskammtur má ekki vera hærri en 4 stakskammtaílát á dag. Meðferð má ekki standa yfir lengur en í 4 vikur.
- Hvernig blanda skal lausnina - Opnið pokann og hellið innihaldinu í glas. Bætið 62,5 ml af vatni í glasið (¼ glas). Hrærið vandlega í þar til duftið er uppleyst og Movicol Junior Neutral lausnin er tær eða örlítið skýjuð. Barnið getur síðan drukkið lausnina.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 040823
Verð5.499 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.