Moviprep
4 pokarMoviprep er hægðalyf með sítrónubragði sem er pakkað í fjóra skammtapoka. Það eru tveir stærri skammtapokar (‘skammtapoki A’) og tveir minni skammtapokar (‘skammtapoki B’). Þú þarft að nota alla þessa poka fyrir eina meðferð.
Moviprep er eingöngu ætlað til notkunar hjá fullorðnum til að hreinsa ristilinn svo hann sé tilbúinn fyrir skoðun. Moviprep verkar þannig að það tæmir innihald ristilsins, svo þú skalt reikna með niðurgangi.
Notkun:
- Ath fara vel eftir leiðbeiningum í fylgiseðli
Meðferðina má taka annað hvort sem skipta skammta eða sem stakan skammt, eins og lýst er að neðan: 1. Skiptir skammtar: einn lítri af Moviprep kvöldið áður og annar að morgni aðgerðardagsins. 2. Stakur skammtur: tveir lítrar af Moviprep eru teknir inn kvöldið fyrir aðgerð eða tveir lítrar að morgni þegar aðgerðin fer fram.