Immex
2,00 mg - 12 stkImmex inniheldur virka efnið lóperamíð og er við niðurgangi. Það er skylt morfíni og öðrum lyfjum sem unnin eru úr ópíumvalmúa. Þessi efni eru kölluð ópíóíðar. Áhrif lóperamíðs eru bundin við meltingarveginn þar sem það hægir á þarmahreyfingum og eykur upptöku vatns og salta úr innihaldi þarma.
Lóperamíð er notað við bráðum niðurgangi og í langtímameðferð við niðurgangi af völdum bólgusjúkdóma, krabbameins í ristli eða krabbameinsmeðferðar. Lyfið hentar síður við niðurgangi vegna sýkingar nema sýklalyf séu gefin því samtímis. Ef ekki aukast líkur á því að sýkingin berist í blóðið. Ólíkt öðrum ópíóíðum hefur lóperamíð lítil sem engin verkjastillandi, hóstastillandi eða öndunarbælandi áhrif. Ávanahætta er hverfandi. Aukaverkanir lóperamíðs eru sjaldgæfar og flestar bundnar við meltingarveginn.
Notkun:
- Fullorðnir: Byrjað er á 4 mg (2 töflur) og síðan má taka 2 mg (1 tafla) eftir hverja hægðalosun með niðurgangi, í fyrsta lagi 1 klst eftir upphafsskammt. Hámark 12 mg (6 töflur) á sólarhring.
- Unglingar 12 ára og eldri: Byrjað er á 2 mg (1 tafla) og síðan má taka 2 mg (1 tafla) eftir hverja hægðalosun með niðurgangi, í fyrsta lagi 1 klst eftir upphafsskammt. Hámark 8 mg (4 töflur) á sólarhring.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.