Lyf
Picoprep
2 pokarPicoprep er hægðalosandi lyf sem er gefið til undirbúnings fyrir röntgenrannsóknir, speglanir og skurðaðgerðir. Áhrifa natríumpicósúlfats gætir í ristlinum þar sem það örvar slímhúðina og þarmahreyfingarnar aukast.
Þar með flýtir fyrir því að þarmarnir tæmast. Magnesíumsítrat bindur vatn í þörmunum þannig að hægðirnar verða þynnri og þarmarnir þenjast út og örva þannig þarmahreyfingar. Saman stuðla þessi tvö efni að kraftmikilli úthreinsun.
Notkun:
- Lyfið er tekið inn í tveimur skömmtum, daginn fyrir rannsókn eða aðgerð, sá fyrri kl. 8 og sá seinni 6-8 klst. síðar. Fullorðnir og börn eldri en 9 ára: 1 poki í senn. Börn 4-9 ára: 1 poki að morgni, ½ poki seinni partinn. Börn 2-4 ára: ½ poki í senn. Börn 1-2 ára. ¼ poki í senn. Duftið skal blanda út í 150 ml af köldu vatni, hræra saman í 2-3 mín. og drekka. Meðan á tæmingu stendur skal drekka u.þ.b. 250 ml af vatni eða öðrum tærum vökva á hverri klukkustund.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.
Vörunúmer: 397796
Verð6.208 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.