Lyf
Nicotinell
21,00 mg/sólh - 21 stkNikótínlyf eru notuð sem hjálpartæki til að auðvelda fólki að hætta að reykja eða til að draga úr reykingum. Ef nikótínþörf er mikil getur verið erfitt að hætta reykingum skyndilega. Lyfin skila nikótíni hægt út í blóðið, mun hægar og í minna magni en þegar reykt er, en það dugar til þess að slá á helstu fráhvarfseinkenni reykinga.
Nicotinell er til sem forðaplástur, tyggigúmmí og munnsogstöflur. Forðaplásturinn skilar frá sér nikótíni jafnt og þétt. Tyggigúmmíið (Classic, Fruit, IceMint, Lakrids, Mint og Tropical Fruit) er lyfjaform þar sem notandinn stjórnar sjálfur skömmtuninni, oftast er mælt með einum skammti á klst. fresti. Munnsogstöflur (Mint) frásogast um slímhúð í munni.
Vörunúmer: 461917
Verð12.799 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.